Frá 01.08.2010 09:29 til 01.08.2010 10:29
Bach og Ravel á Gljúfrasteini
Sunnudaginn 1. ágúst næstkomandi klukkan 16 mun Ólafur Elíasson flytja verk eftir J.S. Bach og M. Ravel. Hann mun kynna fúgur Bachs sérstaklega, sem voru í miklu uppáhaldi hjá Halldóri Laxness, og gefa tónleikagestum innsýn í þessi verk með nokkrum tóndæmum og léttum útskýringum. Aðgangseyrir er 1.000 krónur.