Atburður

Frá 09.09.2010 06:00 til 12.09.2010 10:00

Heimsljós hátíðin

Prajnaparamita einn virtasti andlegi leiðbeinandi HollandsHeimsljós hátíðin verður haldin í Mosfellsbæ í byrjun september. Tilgangur hátíðarinnar er að hleypa jákvæðni og samhyggð inn í íslenskt samfélag. Af því tilefni kemur hingað til lands nokkur fjöldi fólks. Meðal Þátttakenda verður Prajnaparamita einn virtasti andlegi leiðbeinandi Hollands.
Einnig munu koma fram á hátíðinni tónlistarfólk bæði íslenskt og erlent.

Hátíðin skiptist í fjóra atburði

"Ljósið innst í hjarta þínu".  Prajnaparamita verður með satsang-námskeið í Lágarfellsskóla. Einkennist öll hennar nærvera og kennsla af gleði, ljósi, innsæi og djúpri visku. Rætur Satsang er að finna í indverskri menningu og merkir orðið; að dvelja í sannleikanum.

"Dagar heildrænar heilsu", þar gefst kostur á að kynna sér ýmislegt sem viðkemur líkama og sál. Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra, prufutímar sem og styttri kynningar og ör-námskeið.

"Hópheilun" er heilunarsamkoma sem verður í Lágarfellsskóla. Að hópheilunni munu koma heilarar og sjáendur, einnig mun fólk frá Sasha Sagan sjá um tónlist og kyrjun.

"Ísland, friður, ljós" er útisamkoma sem haldin verður sunnudaginn 12.09.2010 í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ frá kl 15:00 - 17:00.

Nokkur fjöldi fólks mun taka þátt í samkomunni og leggja sitt af mörkum til að hleypa ljósi og von í hjarta Íslensku þjóðarinna.
Nánar um hátíðina á www.heimsljos.is