Kvenfélagið Dalalæðurnar í Mosfellsdal efna til flóamarkaðar í Reykjadal, Mosfellsdal, laugardaginn 4. september kl. 11 – 16.
Þú getur lagt þitt af mörkum með því að koma með góssið þitt sem þú ert hætt/hættur að nota, fötin, skóna, minni húsgögn, búsáhöld, skart og skraut, kökur og kruðerí, eða hvað sem er og við sjáum um að selja það fyrir þig.
Allur ágóði af flóamarkaðnum rennur óskiptur til styrktar starfseminni í Reykjadal.
Tekið verður á móti dóti þriðjudaginn 31.ágúst og föstudaginn 3. september á milli kl. 17 og 20 í Reykjadal, Mosfellsdal.
Tökum nú höndum saman og styrkjum gott málefni !
Upplýsingar veita: Guðný: 897-6099, Liselotte: 865-1519 og Svava: 899-5303.