Fimmtudaginn 9. september verða haldnir styrktartónleikar í Reykjadal í Mosfellsbæ kl. 20.
Tónleikarnir verða
undir berum himni.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur frá árinu 1963 rekið sumar- og
helgardvalarstað í Reykjadal fyrir fötluð börn og ungmenni. Nýverið var
ákveðið að sökum niðurskurðar fjárútláta til stofnunarinnar verði ekki
hægt að bjóða upp á helgaropnun í vetur. Stuðningsmenn Reykjadals hafa
brugðist við með því að hefja söfnun svo hægt sé að hafa opið í vetur.
Alls þarf að safna 15 milljónum króna.
Fjöldi þekktra tónlistarmanna munu koma fram á tónleikunum: Diddú,
Fjallabræður, Gildran, Hafdís Huld, Bermuda, Hreindís Ylva, Íris Hólm,
Dúettinn Hljómur, Moy, Karlakór Kjalnesinga og Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar. Steindi Jr. og Dóri DNA kynna.
Miðaverð kr. 1.500 og fer miðasala fram á staðnum. Nánari upplýsingar veitir Hulda Jónasdóttir í s. 866 0114.