Atburður

Frá 26.01.2012 04:00 til 24.02.2012 07:00

Sýningin HUXI! í Listasal Mosfellsbæjar

Huxi!HUXI! Hugleikur Dagsson & Örn Tönsberg.
Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna Þverholti 2.
26. janúar - 24. febrúar 2012.

Fimmtudaginn, 26. janúar kl. 16, var opnuð sýningin HUXI! í Listasal Mosfellsbæjar.

Sýningin HUXI! er samsýning Hugleiks Dagssonar og Arnar Tönsberg. Markmið þessarar sýningar er að vekja unglinga til umhugsunar um myndlist og vinnuna á bakvið verkin. Listamennirnir sýna annars vegar teiknimyndasöguverk og hins vegar „grafítí“verk.

HUXI! er önnur sýningin af þremur sem Listasalur Mosfellsbæjar skipuleggur á þessu sýningarári þar sem hafður er í huga ákveðinn aldurshópur. Sýningin „Úlfur Úlfur“ var opnuð í nóvember 2011. Hún var sniðin að börnum og var fyrsta sýningin í sýningarröð salarins. HUXI! er skipulögð með unglinga í huga. Þriðja og síðasta sýningin verður auglýst síðar.

Sýningin HUXI! verður í tveimur hlutum. Í fyrstu verða sýnd verk Hugleiks og Arnar, en þegar líður á sýninguna munu nemendur úr 10. bekk Lágafellsskóla og Varmárskóla setja upp verk sín sem unnin eru undir áhrifum af verkum Hugleiks og Arnar. Unglingarnir fá því einstakt tækifæri til að sýna verk sín samhliða þessum frábæru listamönnum.

Sýningarstjóri er: Hildur Rut Halblaub.

Allir velkomnir og ókeypis aðgangur
Sýningin er opin á opnunartíma Bókasafnsins
Nánari upplýsingar er að finnna á síðu bókasafnisin www. Bokmos.is eða síma 566 6822

viðburðadagatal

Sýningin HUXI! í Listasal Mosfellsbæjar
26.01.12 16:00 - 24.02.12 19:00
Dagskrá í Hlégarði um bæjarlistamann 2012
23.02.12 20:00 - 23.02.12 21:30
Opin hús - Húmor og gleði við uppeldi barna
29.02.12 20:00 - 29.02.12 21:00
POWERtalk deildin Korpa - opinn fundur
07.03.12 20:00 - 07.03.12 22:00
POWERtalk deildin Korpa - opinn fundur
21.03.12 20:00 - 21.03.12 22:00
Opin hús - Ökumenn foreldrabílsins
28.03.12 20:00 - 28.03.12 21:00
POWERtalk deildin Korpa - opinn fundur
04.04.12 20:00 - 04.04.12 22:00
POWERtalk deildin Korpa - opinn fundur
18.04.12 20:00 - 18.04.12 22:00
Opin hús - Hvað tek ég með mér út í lífið?
25.04.12 20:00 - 25.04.12 21:00
POWERtalk deildin Korpa - opinn fundur
02.05.12 20:00 - 02.05.12 22:00