Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Fugla­skoð­un­ar­hús­ið í Leiru­vogi

Fugla­skoð­un­ar­hús­ið í Leiru­vogi var vígt þann 29. apríl 2009. Fugla­hús­ið nýt­ist al­menn­ingi og skól­um í Mos­fells­bæ vel við fugla­skoð­un við Leiru­vog­inn, enda er Leiru­vog­ur­inn ein­stak­ur hvað varð­ar fugla­líf all­an árs­ins kring. Auk þess er fugla­áhuga­fólki hvað­an æva að heim­ilt að nýta sér þá góðu að­stöðu sem þarna er í boði.

Hús­ið er vel stað­sett ná­lægt leirunni þar sem fjöldi vað­fugla held­ur til, ásamt því að veita góða yf­ir­sýn yfir Langa­tanga sem marg­ar fugla­teg­und­ir nýta sér sem hvíld­ar­stað.

Inni í hús­inu er að finna grein­argott upp­lýs­inga­skilti um þá fugla sem finna má á leirunni ásamt gesta­bók sem gest­ir eru hvatt­ir til að rita nafn sitt í.


Að­gang­ur að hús­inu

Lykl­ar að fugla­skoð­un­ar­hús­inu fást af­hent­ir í Íþróttamið­stöð­inni Lága­felli, Lækj­ar­hlíð 1a, virka daga frá kl. 6:30 til 21:30 og um helg­ar frá kl. 8:00 til 19:00. Auk þess eiga sér­leg­ir fugla­áhuga­menn eða fé­lög þess kost að fá lyk­il til um­ráða til varð­veislu.


Stað­setn­ing

Hús­ið er stað­sett við Langa­tanga neð­an við golf­völl­inn í Mos­fells­bæ. Að­gengi að hús­inu er gott með göngu­stíg­um sem liggja með­fram strönd­inni eða frá golf­skál­an­um. Að­staða fyr­ir fatl­aða er góð og geta fatl­að­ir at­hafn­að sig sjálf­ir í hús­inu.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00