Rekstrarstyrkir til einkarekinna leikskóla
Samþykkt á 549. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 22. desember 2010
Gjaldskrá vegna rekstrarstyrkja til einkarekinna leikskóla.
1. gr.
Mosfellsbær greiðir rekstrarstyrki til einkarekinna leikskóla. Einungis er greiddur rekstrarstyrkur með þeim börnum sem falla undir skilgreiningu bæjarins um leikskólaaldur hverju sinni.
2. gr.
Almennt:
Rekstrarstyrkur pr. klst. kr. 4.925
4 klst. vistun kr. 19.700
5 klst. vistun kr. 24.625
6 klst. vistun kr. 29.550
7 klst. vistun kr. 34.475
8-9 klst. vistun kr. 39.400
Hámarksstyrkur m.v. 8-9 klst. vistun er því sbr. ofanskráð kr. 39.400
3. gr.
Skilyrði fyrir niðurgreiðslum samkvæmt gjaldskrá þessari er að barnið eigi lögheimili í Mosfellsbæ. Einungis er niðurgreitt í ellefu mánuði ár hvert.
Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar og gildir frá 1. janúar 2011.