Fréttasafn
2014
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2009
Bæjarstjórnarfundur
612. fundur
Bæjarstjórnar Mosfellsbæjar
haldinn að Þverholti 2, 2. hæð Helgafell,
miðvikudaginn 9. október 2013 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Karl Tómasson, Bryndís Haraldsdóttir (BH), Kolbrún G Þorsteinsdóttir (KGÞ), Haraldur Sverrisson (HSv), Hafsteinn Pálsson (HP), Jón Jósef Bjarnason (JJB), Jónas Sigurðsson (JS), Stefán Ómar Jónsson (SÓJ).
Fundargerð ritaði: Stefán Ómar Jónsson, bæjarritari
Samþykkt samhljóða að taka á dagskrá kosningu forseta og varaforseta og kosningu formanns og varaformanns bæjarráðs. Einnig kosningu í nefnd. Dagskrárliðirnir komi fremst á dagskrá fundarins.
Dagskrá:
1. 201206151 - Kosning í bæjarráð
.
Tillaga kom fram um Bryndísi Haraldsdóttur sem formann bæjarráðs og Hafstein Pálsson sem varaformann. Ekki komu fram fleiri tillögur og teljast þau því réttkjörin formaður og varaformaður bæjarráðs.
2. 201306280 - Kosning í nefndir 2013
.
Tillaga kom fram um Hildi Margrétardóttur sem varaáheyrnarfulltrúa í fræðslunefnd í stað Kristínar Pálsdóttur.
Fleiri tillögur komu ekki fram og skoðast Hildur Margrétardóttir því réttkjörin.
3. 201206149 - Kosning forseta bæjarstjórnar
.
Til máls tók(u):BH, JJB, SÓJ, HSv og JS.
Tillaga koma fram um Karl Tómasson sem forseta bæjarstjórnar og Hafstein Pálsson sem 1. varaforseta bæjarstjórnar og Kolbrúnu G. Þorsteinsdóttur sem 2. varaforseta bæjarstjórnar.
Tillaga kom fram um Bryndísi Haraldsdóttur sem forseta bæjarstjórnar og var tillagan borin upp og felld með fjórum atkvæðum.
Framangreind tillaga um þau Karl Tómasson, Hafsteinn Pálsson og Kolbrún G. Þorsteinsdóttir borin upp og samþykkt með fimm atkvæðum gegn einu atkvæði.
Nýkjörinn forseti, Karl Tómasson tók að þessu gerðu við stjórn fundarins úr hendi fráfarandi forseta Bryndísar Haraldsdóttur.
4. 201309018F - Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1136
Fundargerð 1136. fundar bæjarráðs lögð fram til afgreiðslu á 612. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
4.1. 200607122 - Gatnagerð Reykjahvoli og Bjargslundi
Varðandi framkvæmdir við Reykjahvol.
Niðurstaða 1136. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Samþykkt með tveimur atkvæðum að heimila umhverfissviði að bjóða út gatnagerðar við Reykjahvol í samræmi við svokallaða B leið.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 1136. fundar bæjarráðs samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
4.2. 201206021 - Hlégarður - endurbætur
Um er að ræða ósk um heimild til samningagerðar í kjölfar útboðs á ytra byrði Hlégarðs, en fyrirhugað er að skipta um glugga í húsinu og klæða húsið með Ímúr-klæðningu.
Niðurstaða 1136. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Samþykkt með þremur atkvæðum að heimila umhverfissviði að ganga til samninga við lægstbjóðanda Einar Pé og Kó. slf. um ytra byrði á Hlégarði.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 1136. fundar bæjarráðs samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
4.3. 201305069 - Framkvæmdir 2013
Um er að ræða yfirlit vegna framkvæmda árið 2013.
Niðurstaða 1136. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Jóhanna B Hansen framkvæmdastjóri fór yfir og útskýrði framkvæmdir á vegum bæjarins á árini 2013. Erindið lagt fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 1136. fundar bæjarráðs lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
4.4. 201309297 - Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til að efla leigumarkað
Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um bráðaaðgerðir til að efla leigumarkað á Íslandi, 40. mál.
Niðurstaða 1136. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Erindið lagt fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 1136. fundar bæjarráðs lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
4.5. 201309370 - Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi
Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi, 37. mál.
Niðurstaða 1136. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Erindið lagt fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 1136. fundar bæjarráðs lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
4.6. 201309426 - Erindi Alþingis varðandi umsögn um þingsályktunartillögu um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum
Erindi Alþingis varðandi umsögn um þingsályktunartillögu um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum, 44. mál.
Niðurstaða 1136. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Erindið lagt fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 1136. fundar bæjarráðs lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
5. 201310002F - Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1137
Fundargerð 1137. fundar bæjarráðs lögð fram til afgreiðslu á 612. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
5.1. 200605022 - Erindi Margrétar Tryggvadóttur varðandi uppskipti á jörðinni Miðdal I
Erindi Margrétar Tryggvadóttur varðandi uppskipti á jörðinni Miðdal I, þar sem talið er að forsendur fyrir uppskiptingar landsins liggi nú fyrir.
Niðurstaða 1137. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar byggingarfulltrúa.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 1137. fundar bæjarráðs samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
5.2. 201309450 - Erindi Neytendasamtakanna varðandi styrkbeiðni
Erindi Neytendasamtakanna varðandi beiðni um styrkveitingu vegna ársins 2014 að upphæð 162 þúsund krónur.
Niðurstaða 1137. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Samþykkt með þremur atkvæðum að synja erindinu.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 1137. fundar bæjarráðs samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
5.3. - Stjórnun í Varmárskóla
Lagt fram minnisblað um stjórnun í Varmárskóla skólaárið 2013-14. Framkvæmdastjóri fræðslusviðs og mannauðsstjóri mæta á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Niðurstaða 1137. fundar Bæjarráðs Mosfellsbæjar
Á fundinn undir þessum dagskrárlið voru mætt Björn Þráinn Þórðarson (BÞÞ) framkvæmdastjóri fræðslusviðs og Sigríður Indriðadóttir (SI) mannauðsstjóri.
Framkvæmdastjóri fræðslusviðs og mannauðsstjóri fóru munnlega yfir stjórnun í Varmárskóla og svöruðu fyrirspurnum fundarmanna þar um. Umræður á fundinum eru trúnaðarmál.
Afgreiðsla þessa fundar:
JJB, KT, HSv, HP, KGÞ, BH og JS.
Afgreiðsla 1136. fundar bæjarráðs lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
Tillaga kom fram frá bæjarfulltrúa Jóni Jósef Bjarnasyni að fela bæjarritara skoða hvort hægt væri að birta umrædda starfslokasamninga.
Fram kom málsmeðferðartillaga um að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Málsmeðferðartillagan borin upp og samþykkt með sex atkvæðum.
6. 201309017F - Fræðslunefnd Mosfellsbæjar - 284
Fundargerð 284. fundar fræðslunefndar lögð fram til afgreiðslu á 612. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
6.1. 2013082099 - Skýrsla um upplýsingatækni í grunnskólum
Lagt fram til upplýsinga.
Niðurstaða 284. fundar Fræðslunefndar Mosfellsbæjar
Skýrslan lögð fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 284. fundar fræðslunefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
6.2. 201309391 - Tölvumál í grunnskólum Mosfellsbæjar
Fulltrúar Lágafellsskóla, Varmárskóla og Krikaskóla fara yfir stöðu tölvukosts skólanna og væntingar til framtíðar.
Niðurstaða 284. fundar Fræðslunefndar Mosfellsbæjar
Á fundinn mættu sérfræðingar og ráðgjafar grunnskóla um tölvumál, Andrés Ellert úr Varmárskóla og Kristján Sigurðsson Lágafellsskóla.
Fræðslunefnd mælist til þess við Skólaskrifstofuna að taka saman upplýsingar um stöðu tölvumála og upplýsingatækni í grunnskólunum, með það að markmiði að miðla af mismunandi reynslu skólanna. Jafnframt verði unnið að stefnumótun um uppbyggingu tölvubúnaðar við skólana.
Afgreiðsla þessa fundar:
BH og JS.
Afgreiðsla 284. fundar fræðslunefndar samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
6.3. 201309383 - Reglur um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög
Lögð fram drög að reglum fyrir Mosfellsbæ um með hvaða hætti skuli staðið að samskiptum skóla og trúfélaga.
Niðurstaða 284. fundar Fræðslunefndar Mosfellsbæjar
Fræðslunefnd leggur til við bæjarstjórn að reglur um samskipti skóla og trúfélaga verði samþykktar með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
Afgreiðsla þessa fundar:
Reglur um samskipti skóla og trúfélaga samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
6.4. 201309236 - Ársskýrsla Skólaskrifstofu 2012-2013
Ársskýrsla Skólaskrifstofu 2012-13 lögð fram til upplýsinga
Niðurstaða 284. fundar Fræðslunefndar Mosfellsbæjar
Ársskýrsla lögð fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 284. fundar fræðslunefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
6.5. 201309377 - Úttekt á starfsemi Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
Lagt fram til upplýsinga.
Niðurstaða 284. fundar Fræðslunefndar Mosfellsbæjar
Skýrsla um starfsemi FMOS lögð fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 284. fundar fræðslunefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
6.6. 201309437 - Nafn á nýjar leikskóladeildir
Gerð er tillaga um nafnaval á leikskóladeild við Blikastaðaveg vestan Þrastarhöfða
Niðurstaða 284. fundar Fræðslunefndar Mosfellsbæjar
Fræðslunefnd leggur til að kjör á nafni fari fram á heimasíðu bæjarins. Lagt er til við bæjarstjórn að kosið verði um eftirfarandi nöfn: Blikaból, Höfðaból, Höfðaberg.
Afgreiðsla þessa fundar:
JS, BH, HP og JJB.
Afgreiðsla 284. fundar fræðslunefndar samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
7. 201310001F - Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar - 174
Fundargerð 174. fundar íþrótta-og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu á 612. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
7.1. 2013081383 - Forgagnsröðun uppbyggingar mannvirkja til íþrótta- og tómstundastarfs
Undirbúningur fyrir samráðsfund þann 26.10.13. Á fundinn mættu Halldór Halldórsson og Gylfi Dalmann Aðalsteinsson sem aðstoða við væntanlegan fund.
Niðurstaða 174. fundar Íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar
Rætt var um skipulag samráðsfundar með íþrótta- og tómstundafélögum í Mosfellsbæ um samráð og forgangsröðun á uppbyggingu mannvirkja til íþrótta- og tómstundastarfs. Um er að ræða upphaf að lengra ferli. Stefnt er að því að safna upplýsingum um viðhorf og þarfir íþrótta- og tómstundafélaga. Í framhaldi af því verði hönnuð aðferðarfræði við að meta forsendur fyrir forgangsröðun milli mismunandi greina og tómstundastarfs.
Afgreiðsla þessa fundar:
JS, HSv og BH.
Afgreiðsla 174. fundar íþrótta-og tómstundanefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
7.2. 201004217 - Frístundaávísanir - nýting
Nýting frístundaávísanna 2010-2013
Niðurstaða 174. fundar Íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar
Upplýsingar lagðar fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
JJB, HSv, BH og HP.
Afgreiðsla 174. fundar íþrótta-og tómstundanefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
7.3. 200909840 - Reglur um frístundagreiðslur í Mosfellsbæ
Tillögur að breytingum reglna um frístundagreiðslur
Niðurstaða 174. fundar Íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar
Breytingar lagðar fram. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagðar breytingar í samræmi við athugasemdir sem fram komu á fundinum.
Afgreiðsla þessa fundar:
JJB, JS, HP og BH.
Afgreiðsla 174. fundar íþrótta-og tómstundanefndar samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
7.4. 201309284 - Erindi af formannafundur Aftureldingar
Erindi formannafundur Aftureldingar frá 27. ágúst varðandi úthlutun á styrkveitingum.
Niðurstaða 174. fundar Íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar
Erindi lagt fram. Íþróttafulltrúa falið að leita eftir afstöðu stjórnar Aftureldingar til málsins.
Afgreiðsla þessa fundar:
JJB.
Afgreiðsla 174. fundar íþrótta-og tómstundanefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
7.5. 2013081710 - Erindi Ungmennafélags Aftureldingar varðandi samning við N1
Erindi Aftureldingar þar sem farið er fram á leyfi til þess að mannvirki Mosfellsbæjar að Varmá verði merkt með lógói N1. Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar íþrótta- og tómstundanefndar .
Niðurstaða 174. fundar Íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar
Umsögn send bæjarráði.
Afgreiðsla þessa fundar:
KT, JS og HP.
Afgreiðsla 174. fundar íþrótta-og tómstundanefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
7.6. 2013081275 - Bréf frá Frisbígolfsambandi Íslands
Á 173 fundi íþrótta og tómstundanefndar var íþróttafulltrúa falið að hafa samband við forsvarsmenn Frisbígolfsambandsins og kanna málið frekar. Meðfylgjandi eru niðurstöður þess fundar.
Niðurstaða 174. fundar Íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar
Upplýsingar lagðar fram. Íþróttafulltrúa falið að vinna áfram að málinu.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 174. fundar íþrótta-og tómstundanefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
8. 201309022F - Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar - 350
Fundargerð 350. fundar skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu á 612. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
8.1. 200611011 - Aðalskipulag 2011-2030, endurskoðun á AS 2002-2024
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 19. september 2013, þar sem tilkynnt er að stofnunin hafi staðfest aðalskipulag Mosfellsbæjar 2011-2030 og sent auglýsingu um staðfestinguna í B-deild Stjórnartíðinda. Bréfinu fylgja undirrituð skipulagsgögn.
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Skipulagsnefnd fagnar þessum merka áfanga og þakkar þeim starfsmönnum sem komu að verkefninu.
Afgreiðsla þessa fundar:
BH og HP.
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn þakkar öllum sem hafa komið að endurskoðun aðalskipulagsins, hönnuðum, nefndarmönnum, starfsmönnum og íbúum.
8.2. 201309155 - Landnúmer 125620 Þormóðsdal, ósk um byggingu frístundahúss
Kristín Karólína Harðardóttir spyrst 6. september 2013 fyrir um möguleika á því að byggja frístundahús, hæð og ris, í stað eldra húss sem brann. Frestað á 349. fundi.
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Skipulagsnefnd synjar erindinu þar sem stærð hússins er umfram 90 m2 viðmiðun sem fram kemur í aðalskipulagi.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
8.3. 201309467 - Lnr. 125626, fyrirspurn um viðbyggingu við frístundahús
Margrét Pála Ólafsdóttir spyrst þann 25. september fyrir um afstöðu nefndarinnar til hugmynda um viðbyggingu við frístundahús skv. meðfylgjandi gögnum.
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Skipulagsnefnd synjar erindinu þar sem stærð hússins er umfram 90 m2 viðmiðu sem fram kemur í aðalskipulagi.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
8.4. 201305199 - Hraðahindrun við Leirutanga, erindi íbúa
Undirskriftalisti sem barst 23. maí 2013 með nöfnum 9 íbúa við Leirutanga, sem óska eftir hraðahindrunum á þremur stöðum í götunni.
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Nefndin vísar málinu til umsagnar bæjarverkfræðings.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
8.5. 201304311 - Hjólreiðastígur í miðbæ
Lagður fram uppdráttur af legu göngu- og hjólreiðastígs frá Litlaskógi um Miðbæ að Brúarlandi og fyrirhugaðri áfangaskiptingu hans.
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Nefndin lýsir ánægju sinni með tillöguna.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
8.6. 2013082018 - Samræming á deiliskipulagi "Frá Reykjalundarvegi að Húsadal"
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarfulltrúa um breytingar á skilmálum, sbr. bókun á 348. fundi, sjá minnisblað "Drög 2 að tillögu um breytingar."
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa nánari úrvinnslu tillögu að deiliskipulagsbreytingu í samræmi við umræður á fundinum.
Afgreiðsla þessa fundar:
JS, BH, HP og JS.
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 612. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
8.7. 201001142 - Erindi Umferðarstofu varðandi umferðaröryggisáætlun
Lögð fram tillaga að fimm ára framkvæmda- og aðgerðaráætlun í umferðaröryggismálum.
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Lagt fram.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
8.8. 201309295 - Völuteigur 8, umsókn um byggingarleyfi
Byggingarfulltrúi óskar aftir áliti skipulagsnefndar á því hvort umsókn um að reisa 2 m girðingu utan um lóðina samræmist deiliskipulagi.
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Frestað.
Afgreiðsla þessa fundar:
HP, JJB, JS og HSv.
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
8.9. 201005206 - Svæði fyrir lausa hunda í Mosfellsbæ
Lögð fram tillaga umhverfisstjóra að staðsetningu umgirts svæðis austan Álafosskvosar, þar sem leyft verði að láta hunda ganga lausa.
Niðurstaða 350. fundar Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
Frestað.
Afgreiðsla þessa fundar:
JS, KT, JJB, BH, KGÞ, HP og HSv.
Afgreiðsla 350. fundar skipulagsnefndar lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
9. 201309019F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 234
Fundargerð lögð fram til kynningar
Til máls tók(u):HP, BH, JJB og JS.
Fundargerð 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
9.1. 201309227 - Braut 123743, umsókn um byggingarleyfi
Herdís Þórisdóttir Æsustaðavegi 4 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að breyta gluggum og gera smávægilegar innri fyrirkomulagsbreytingar á áður samþykktum uppdráttum fyrir óbyggt íbúðarhús að Æsustaðavegi 4
(Braut) samkvæmt framlögðum gögnum.
Heildarstærðir hússins breytast ekki.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.2. 201309191 - Bræðratunga / Umsókn um byggingarleyfi
Torfi Magnússon Baughúsi 17 Reykjavík sækir um leyfi til að endurbyggja úr steinsteypu húsið að Bræðratungu sem íbúðarhús samkvæmt framlögðum gögnum.
Stærð: 1. hæð 120,0 m2, 2. hæð 56,3 m2, samtals 532,2 m3.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.3. 201309156 - Laxatunga 25, umsókn um byggingarleyfi
Haraldur Reynisson Laxatungu 25 Mosfellsbæ sækir um leyfi fyrir smávægilegum innri fyrirkomulagsbreytingum í húsinu nr. 25 við Laxatungu í samræmi við framlögð gögn.
Heildarstærðir hússins breytast ekki.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.4. 201309043 - Lyngbrekka, umsókn um byggingarleyfi
Guðfinna Hjálmarsdóttir Hlíðarhjalla 45 Kópavogi sækir um leyfi fyrir reyndarteikningum, innrétta svefnloft og skriðkjallara með 180 cm lofthæð í sumarbústað sínum að Lyngbrekku í Miðdalslandi samkvæmt framlögðum gögnum.
Stækkun húss: Skriðkjallari 74,5 m2, svefnloft 45,8 m2 145,3 m3.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Frestað þar sem stærðir hússins rúmast ekki innan deiliskipulags lóðarinnar en umsækjandi getur sótt um leyfi skipulagsnefndar til að breyta því.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.5. 201309299 - Lynghóll 2, umsókn um byggingarleyfi
Vigdís Magnúsdóttir Sóleyjarima 71 Reykjavík sækir um leyfi til að stækka úr timbri sumarbústað sinn í Lynghólslandi samkvæmt framlögðum gögnum.
Stækkun bústaðs 44,2 m2, 155,0 m3.
Stærð bústaðs eftir breytingu 91,4 m2, 301,8 m3.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.6. 201309242 - Lækjarhlíð 1, umsókn um byggingarleyfi
Mosfellsbær Þverholti 2 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja tvær færanlegar kennslustofur úr timbri, matshluta 13 og 14, á skólalóðinni að Lækjarhlíð 1 samkvæmt framlögðum uppdráttum.
Staðsetning kennslustofanna er innan ramma deiliskipulags lóðarinnar.
Stærð hvorrar stofu er 83,6 m2, 328,7 m3.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.7. 201306156 - Reykjahvoll 33, Umsókn um byggingarleyfi
Guðmundur Borgarsson ehf. sækir um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús úr steinsteypu á lóðinni nr. 33 við Reykjahvol samkvæmt framlögðum gögnum.
Stærð: Bílgeymsla 54,3 m2, íbúð 1. hæð 88,2 m2, 2. hæð 177,7 m2, samtals 1096,2 m3.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.8. 201309362 - Stórikriki 33, umsókn um byggingarleyfi
Óðinn fasteignafélag Sigtúni 3 Selfossi sækir um leyfi til að stækka úr steinsteypu áðursamþykkt einbýlishús að Stórakrika 33.
Stækkun 36,3 m2, 127,0 m3.
Stærð húss eftir breytingu, íbúð 201,7 m2, bílgeymsla 34,3 m2, samtals 856,6 m3.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.9. 201309228 - Svöluhöfði 9, umsókn um byggingarleyfi
Jón Kalmann Stefánsson Svöluhöfða 9 Mosfellsbæ sækir um að breyta innra skipulagi vinnustofu, aðkomu að geymslu og staðsetningu á inntaki veitna samkvæmt framlögðum gögnum.
Heildarstærðir hússins breytast ekki.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt, enda greiði umsækjandi hita- og vatnsveitu Mosfellsbæjar kostnað vegna lagnabreytinga á hennar vegum.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.10. 201309231 - Tunguvegur, umsókn um byggingarleyfi
Mosfellsbær Þverholti 2 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja steyptar brýr og undirgöng við Skeiðholt, Varmá og Köldukvísl samkvæmt framlögðum gögnum.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.11. 201309264 - Úr landi Minna- Mosfells (Villan),umsókn um að rífa húsið
Anna Steinarsdóttir Brekkukoti Mosfellsbæ og Magnús Steinarsson Þverholti 30 Reykjavík sækja um leyfi til að rífa sumarhúsið Villuna sem stendur á Bakkakotsvelli.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Samþykkt.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
9.12. 201309295 - Völuteigur 8, umsókn um byggingarleyfi
Bílapartasalan ehf og Gunnlaugur Bjarnason Lækjartúni 13 Mos. sækja um leyfi til að reisa 2 metra háa netgirðingu á lóðarmörkum hluta lóðarinnar að Völuteigi 8 samkvæmt framlögðum gögnum.
Niðurstaða 234. fundar Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
Byggingafulltrúi frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir afstöðu skipulagsnefndar hvort umsóknin samræmist deiliskipulagi svæðisins.
Afgreiðsla þessa fundar:
Afgreiðsla 234. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 612. fundi bæjarstjórnar.
10. 201309381 - Fundargerð 124. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
.
Til máls tók(u):HP, HSv, BH og KGÞ.
Fundargerð 124. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 20. september 2013 lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
11. 201309425 - Fundargerð 324. fundar Sorpu bs.
.
Til máls tók(u):JS og HP.
Fundargerð 324. fundar Sorpu bs. frá 23. september 2013 lögð fram á 612. fundi bæjarstjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:10