Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009
Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna í Mosfellskirkju í kvöld
07/12/2010
Efnisskráin er með hefðbundnum hætti, klassískir tónar og jólalög.
Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna eru sérstakur tónlistarviðburður í menningarlífi Mosfellsbæjar, en tónleikarnir eru nú haldnir þrettánda árið í röð. Á tónleikunum hafa frá upphafi verið frumfluttar umskriftir á klassískum verkum fyrir blásarasextett og sópran, en þetta er ekki algeng samsetning hljóðfæra og raddar.
Margir Mosfellingar auk annarra hafa árvisst sótt litlu sveitakirkjuna í Mosfellsdal heim að þessu tilefni, enda eru tónleikarnir í Mosfellskirkju á jólaföstu orðnir ómissandi hluti af undirbúningi fyrir helgihald jóla.
Hljóðfæraleikarar eru Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson, sem leika á klarinettur, Emil Friðfinnsson og Þorkell Jóelsson sem leika á horn og á fagott leika Brjánn Ingason og Björn Árnason.
Diddú og drengirnir hafa starfað síðan 1997 og komið reglulega fram á aðventutónleikum í Mosfellskirkju og víða annars staðar. Í júlí síðastliðnum komu Diddú og drengirnir fram á þrennum tónleikum í Alsace héraði í Frakklandi og fluttu fjölbreytta dagskrá með innlendu og erlendu efni. Á einum þessara tónleika kom 50 manna franskur kór fram með hópnum.
Miðasala á tónleikana í Mosfellskirkju verður í Bæjarskrifstofum í Mosfellsbæ í þjónustuveri á fyrstu hæð. Þar er hægt að kaupa miða í forsölu frá 1. desember, en einnig er hægt að greiða miðana símleiðis. Nánari upplýsingar eru veittar í s. 525 6700.