Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009
Fjárhagsáætlun 2013 lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn
01/11/2012Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2013 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær 31.október. Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðunnar sem nemur rúmlega 33 mkr. Áætlaðar tekjur eru 6.732 mkr. Skuldir og skuldbindingar eru 9.289 mkr. Eiginfjárhlutfall er áætlað 29%. Veltufé frá rekstri er 697 mkr sem er 10,4%. Framlegðarhlutfall er 14%.
Megináherslur í fjárhagsáætlun 2013 eru hér eftir sem hingað til að standa vörð um þá grunn- og velferðarþjónustu sem veitt er af stofnunum bæjarins. Í fjárhagsáætluninni fyrir árið 2013 er verið að leggja meiri fjármuni í þjónustuna en nemur verðlagshækkunum sem vonandi verður til þess að bæta þjónustu við íbúa enn frekar.
Uppbygging á sér stað í Mosfellsbæ og gert er ráð fyrir að fjórar stórar byggingarframkvæmdir verði í gangi á árinu 2013. Bygging hjúkrunarheimilis sem gert er ráð fyrir að tekin verði í notkun á árinu. Þjónustumiðstöð fyrir aldraða á Hlaðhömrum verður einnig tekin í notkun og mun hún hafa mikil áhrif á félagsstarf aldraðra á bænum. Bygging framhaldskóla í samvinnu við ríkið er í fullum gangi og gert er ráð fyrir að skólinn verð tekinn í notkun í janúar 2014. Ákveðið var á árinu að ráðast í byggingu á nýjum íþróttasal við Varmá sem hýsa mun aðstöðu fyrir fimleika og bardagaíþróttir. Sú framkvæmd mun fara af stað á nýju ári. Óhætt er að fullyrða að aðstaða fyrir framhaldskólanema, eldra fólk og bætt aðstaða til íþróttaiðkunar barna og unglinga, mun nýtast flestum heimilum í Mosfellsbæ á einn eða annan hátt.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar hér.