Bæjarstjórn
Mosfellsbæjar tók á móti þingmönnum kjördæmisins í Hlégarði á
morgunverðarfundi síðastliðinn fimmtudag. Kjördæmavika var á Alþingi og
hana nýttu þingmennirnir m.a. til að hitta sveitarstjórnarmenn í
kjördæminu.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri hélt erindi fyrir hönd
bæjarstjórnarinnar. Haraldur tók fyrir samskipti ríkis og sveitarfélaga
og fór yfir sameiginleg verkefni ríkisins og Mosfellsbæjar en nýtt
hjúkrunarheimili og framhaldsskóli eru dæmi um slík verkefni sem staðið
hafa yfir undanfarna mánuði. Haraldur sagði frá jákvæðum og neikvæðum
hliðum þessara samskipta og hvatti til viðhorfsbreytinga í þeim efnum.
Mikilvægt væri að samskipti milli þessara aðila væru jákvæð og
uppbyggileg og byggðu á sameiginlegum gildum og benti á gildi
Mosfellsbæjar í því samhengi, en þau eru: Virðing – Jákvæðni – Framsækni – Umhyggja.
Góðar umræður fóru fram í kjölfarið.