Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

Sundlaugar verða opnar um sinn
16/03/2020Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu verða opnar í samkomubanni. Gufu- og eimböðum verður lokað og stöku pottar í nokkrum sundlaugum verða lokaðir ásamt rennibrautum.
Farið verður að tilmælum almannavarna um fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna. Þá verður takmörkuð nýtingin á hankdlæðarekkum og sömuleiðis nýting á sturtum.
Búast má við fjölgun heimsókna frá börnum vegna skerðingar á skóla og frístundastarfi. Sundæfingar verði ekki leyfðar til 23. mars samanber tilmæli ÍSÍ. Sundleikfimi eldri borgara verður felld niður.
Aukin þrif verða í sundlaugunum, starfsfólk lauganna mun spritta og þrífa snertifleti reglulega, bekki, borð, skápa, lykla, sápuskammtara, salerni og þess háttar. Þá verða gestir beðnir um að passa upp á fjarlægðartilmæli sóttvarnarlæknis um tveggja metra bil sín á milli í búningsklefum, sturtum og pottum.
Ákvarðanir varðandi opnun sundlauganna verða endurskoðaðar eftir því sem fram líður og metið hvernig til hefur tekist út frá sóttvarnarsjónarmiðum.