Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

Frestun fasteignagjalda á íbúða- og atvinnuhúsnæði
31/03/2020- sveitarfélögin í Kraganum leggja fram samræmda tillögu
Sveitarfélögin Mosfellsbær, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær og Seltjarnarnes munu leggja fram tillögu, í bæjarráðum eða bæjarstjórnum sveitarfélaganna í vikunni, um frestun fasteignaskatta og fasteignagjalda á eigendur íbúða- og atvinnuhúsnæðis.
Tillagan gerir ráð fyrir að gjalddögum ársins verði fjölgað eða frestað á árinu, (eftir því sem við á í hverju sveitarfélagi), til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs. Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins, sbr. vatnsveitu, holræsis- og sorphirðugjalda, fyrir íbúða- og atvinnuhúsnæði verði dreift eða frestað á tímabilinu frá apríl/maí fram í desember. Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahagsaðstæðna sem nú ríkja.
Samkvæmt tillögunni geta eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.