Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

Rýmri samkomutakmarkanir taka gildi 7. september
07/09/2020Nálægðarreglu hefur verið breytt úr 2 metrum í 1 metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200 með nýjum reglum um takmarkanir á samkomum sem tóku gildi í dag, 7. september. Þetta er meginefni nýrrar reglugerðar Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.
Aðrar breytingar á samkomutakmörkunum með reglugerðinni eru þessar:
- Hámarksfjöldi á sund- og baðstöðum og líkamsræktarstöðvum fer úr helmingi af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í 75%.
- Íþróttir, sviðslistir og önnur menningarstarfsemi getur farið fram þrátt fyrir 1 metra reglu, þ.e. snertingar eru þar heimilar. Um áhorfendur fer eftir almennum reglum um 1 metra og 200 manns í rými.
Opnunartími vínveitingastaða verður áfram takmarkaður við til kl. 23.00.
Frétt á vef Stjórnarráðs Íslands: