Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

Fréttatilkynning frá Almannavörnum varðandi íþróttastarf á höfuðborgarsvæðinu
20/10/2020Höfuðborgarsvæðið er á viðkvæmum tíma í faraldrinum. Smitum á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fækkandi síðustu daga. Næstu daga er mikilvægt að ná enn frekari tökum á þessari bylgju svo hægt verði aftur að draga úr sóttvarnarráðstöfunum í stað þess að herða frekar á þeim.
Sóttvarnaryfirvöld og almannavarnir hafa hvatt alla og höfuðborgarsvæðið sérstaklega til að halda áfram að koma í veg fyrir hópamyndun, nánd og blöndun aðila úr ólíkum áttum næstu vikur. Markmiðið er að draga úr dreifingu og vexti veirunnar og vinna gegn auknu álagi á heilbrigðiskerfið.
Samfélagið á mikið undir því að það takist að halda skólastarfi gangandi. Því er lögð áhersla á að takmarka blöndun barna og unglinga milli ólíkra leik- og grunnskóla höfuðborgarsvæðisins. Að öðrum kosti getur eitt smit leitt til að óþarflega stórir hópar eða fleiri en einn skóli þurfi að fara í einangrun eða sóttkví.
Eftir ítarlega yfirferð yfir stöðuna og í ljósi leiðbeininga sóttvarnaryfirvalda og í samráði við almannavarnir höfuðborgarsvæðisins hafa skóla- og íþróttasvið allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu tekið þá ákvörðun að öll íþróttakennsla muni fara fram utandyra að teknu tilliti til ítrustu sóttvarna og einnig mun skólasund falla niður.
Öll íþróttamannvirki og sundlaugar á vegum sveitarfélaganna verða lokuð. Söfn sem rekin eru á vegum sveitarfélaganna verða einnig lokuð.
Þessi ákvörðun verður endurskoðuð að viku liðinni, í takt við álit sóttvarnalæknis.
*****
Frá Aftureldingu: Áframhaldandi hlé á íþróttaæfingum frá 20. október.