Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

Fréttatilkynning frá Almannavörnum varðandi íþróttastarf meistaraflokka og afrekshópa
21/10/2020Ákveðið var á fundi í dag með fulltrúum allra íþrótta- og tómstundamálasviða sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og starfsfólki almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins, að meistaraflokkar og afrekshópar sem og afreksfólk í einstaklingsgreinum geti hafið æfingar í íþróttamannvirkjum á vegum sveitarfélaganna og félaganna.
Þetta er afmarkað með þeim skilyrðum sem reglugerð heilbrigðisráðherra frá 19. október segir til um vegna íþróttastarfsemi á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að íþróttastarfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða starfsemin krefst mikillar nálægðar eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér óheimil. Íþróttamenn sem með þessu fá leyfi til æfinga gæti því vel að fjarlægðarmörkum sem eru 2 metrar og gæti einnig að almennum persónubundnum sóttvörnum.
Hvert sveitarfélag ákveður hvenær starf getur hafist þar sem undirbúa þarf opnun í samstarfi við starfsfólk mannvirkjanna og í samræmi við strangar sóttvarnareglur ÍSÍ, sérsambandanna, reglugerðir heilbrigðisráðherra og fyrirmæli sóttvarnalæknis.
Íþróttastarf barna fædd 2005 og síðar hefst ekki að svo stöddu ogverður það metið í næstu viku í samstarfi við ÍSÍ og sóttvarnayfirvöld. Nauðsynlegt er að vernda skólastarfið og forðast blöndum barna úr ólíkum hópum sem eru til staðar í skólunum til að fækka þeim sem þurfa að fara í sóttkví ef upp koma smit. Ákveðin áhætta er fólgin í því ef þessi hópar blandast í íþróttastarfi.