Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2009

Covid-19: Skólastarf eftir páska
31/03/2021Staðnám getur hafist að nýju á öllum skólastigum eftir páskafrí með ákveðnum takmörkunum, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Meðfylgjandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi var unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið og tekur í meginatriðum mið af appelsínugulum lit í litakóða viðvörunarkerfis fyrir skólastarf sem kynnt var að loknu umfangsmiklu samráði við skólasamfélagið fyrr í vetur, nema hvað íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar. Gildistími reglugerðarinnar er frá 1. apríl til og með 15. apríl.
„Við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að gera nemendum á öllum skólastigum kleift að ljúka skólastarfinu á sem bestan hátt miðað við aðstæður“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Skólasamfélagið hefur sýnt ómældan sveigjanleika og þrautseigju í þessum aðstæðum og fyrir það erum við þakklát og stolt. Þessar ráðstafanir nú eru kunnuglegar mörgum frá því fyrr í vetur en vonandi þurfum við ekki að búa við þær lengi. Við erum bjartsýn þó staðan sé flókin og munum klára þetta saman.“
Leikskólar
- Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri.
- Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn mega fara milli rýma.
- Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli en nota grímu ella.
- Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
- Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímu.
Grunnskólar
- Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.
- Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.
- Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.
- Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
- Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.
Tónlistarskólar
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Annars skal nota grímur sé þess kostur.
- Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 börn á grunnskólaaldri.
- Viðburðir eru heimilir fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri með sömu skilyrðum og gildir um skólastarf þeirra.
- Einstaklingar fæddir 2004 eða fyrr mega vera að hámarki 20 saman í rými og blöndun er heimil.
- Um viðburði fyrir einstaklinga fædda 2004 fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Framhaldsskólar
- Hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna í rými er 30.
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli nemenda og starfsfólks en nota grímu ella.
- Blöndun nemenda milli hópa er heimil og starfsfólk má fara milli rýma.
- Um viðburði tengda starfi eða félagslífi í framhaldsskóla fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Háskólar
- Hámarksfjöldi í kennslustofu og lesrýmum er 50.
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkunum milli allra en nota grímu ella.
- Blöndun nemenda ekki heimil.
- Starfsmenn mega fara milli rýma.
- Engir viðburðir eru heimilir í skólabyggingum.
Áréttað er að íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar samkvæmt gildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum.
Frétt á vef Stjórnarráðs Íslands.