Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009
Litla upplestrarkeppnin í Mosfellsbæ
23/04/2013Í haust var ákveðið að efna til þróunarverkefnis í 4. bekkjum grunnskóla Mosfellsbæjar en sams konar verkefni hófst í Hafnarfirði haustið 2010 og hlaut nafnið Litla upplestrarkeppnin. Hugmyndin vaknaði þegar Stóra upplestrarkeppnin varð 15 ára og þótti tímabært að færa út kvíarnar og byggja á markmiðum Stóru upplestrarkeppninnar en þau eru að flytja móðurmálið sjálfum sér og öðrum til ánægju og hafa vandvirkni og virðingu að leiðarljósi.
Litla upplestrarkeppnin hófst formlega 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, og stendur fram í apríl en þá lýkur verkefninu með sérstakri lokahátíð eða samverustund. Nú í apríl og maí eru haldnar lokahátíðir í skólunum og þar munu allir nemendur leggja sitt af mörkum. Hátíðin er í formi samveru með foreldrum og kennurum og allir nemendur fá viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Hver og einn skóli útfærir sína hátíð.
Myndirnar sem fylgja þessari frétt eru frá hátíðinni hjá 4 ÞF í Varmárskóla
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |