Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2009
Fréttir eftir mánuðum
Opið hús HJÁ SKÓLASKRIFSTOFU MOSFELLSBÆJAR kl.20
29.02.2012Fátt er betra en góður hlátur og gleði. Á Opnu húsi Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar 29.02 verður sjónum beint að mikilvægi gleðinnar og þess að hafa húmorinn með í uppeldi barna. Skólaskrifstofan hefur fengið til liðs við sig sérfræðing á sviði húmors og hláturs, mömmuna og ömmuna Eddu Björgvinsdóttur. Edda mun flytja hugvekju um HÚMOR OG GLEÐI Í LÍFINU og hvað það getur verið mikil dauðans alvara.
Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar skólaárið 2012 - 2013
29.02.2012Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2012 -2013 fer fram frá 1.-18 mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu. Innritun fer fram í gegnum Íbúagátt. Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem koma úr Krikaskóla, flytjast til Mosfellsbæjar eða koma úr einkaskólum þarf að fara fram fyrir 1. apríl
Mosfellsbær stóð sig vel í Lífshlaupinu
27.02.2012Mosfellsbær stóð sig vel í Lífshlaupinu, heilstuátaki Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, og lenti í 10. sæti af 70 sveitarfélögum sem tóku þátt nú í ár. Mosfellsbær hefur tekið virkan þátt í verkefninu síðastliðin ár með mjög góðum árangri
Marita-fræðsla - hjálpaðu barninu þínu að segja nei við vímugjöfum.
27.02.2012Mánudaginn 27.febrúar - hélt Heilsu- og lífsstílsklúbburinn í Mosfellsbæ annað opið hús ársins, sem er haldið mánaðarlega á Heilsuárinu 2012.Fyrirlesari kvöldsins var Magnús Stefánsson, forstöðumaður Marita á Íslandi. Hann lagði áherslu á að kynna ýmsar góðar leiðir fyrir foreldra..
Nýr íþróttasalur að Varmá,
24.02.2012Ákveðið hefur verið að ráðast í framkvæmdir við 1200 fm viðbyggingu við íþróttamiðstöðina að Varmá sem hýsa mun starfsemi fimleika- og bardagaíþróttadeilda Aftureldingar og skapa möguleika á aukinni félagsaðstöðu félagsins. Gjörbylt aðstaða fyrir bardagaíþróttir og fimleika auk félagsaðstöðu UMFA með nýrri viðbyggingu..
Skálafell opnað eftir langan tíma.
24.02.2012Skíðafólk gat tekið gleði sína á ný því laugardaginn 25. febrúar var Skálafell opnað í fyrsta skipti í langan tíma. Mosfellsbær var meðal þeirra sveitarfélaga sem samþykktu auka fjárveitingu til verkefnisins og ljóst er að opið verður um helgar fram yfir páska í það minnsta.
Skátafélagið Mosverjar 50 ára.
24.02.2012Skátafélagið Mosverjar héldu upp á 50 ára afmæli sitt í Hlégarði þann 22.02, það er jafnframt afmælisdagur Baden Powels stofnanda skátahreyfingarinnar.Margir heiðruðu skáta með veru sinni, má þar nefna Braga Björnsson, skátahöfðingja, Harald Sverrisson, bæjarstjóra Mosfellsbæjar og félagsforingja Mosverja síðustu 30 ár.
Blúsveisla í kvöld!
23.02.2012Í kvöld, fimmtudaginn 23.02, verður sannkölluð blúsveisla hér í Mosfellbænum. Blásið er til stórtónleika á veitingahúsinu Hvíta Riddaranum kl 21 en þar mun Andrea Gylfadóttir koma fram ásamt Future Blues Project.Tónleikarnir eru haldnir í fjáröflunarskyni fyrir Knattspyrnudeild Aftureldingar
Dagskrá um bæjarlistamann í kvöld
23.02.2012Í kvöld, fimmtudaginn 23. febrúar, verður dagskrá í Hlégarði um bæjarlistamann Mosfellsbæjar Bergsteinn Björgúlfsson kvikmyndatökustjóra og framleiðanda. Dagskráin hefst kl. 20.00 og stendur til kl. 21.30.
Skemmtileg heimsókn á bæjarskrifstofuna í tilefni Öskudagsins
22.02.2012Starfsfólk bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar tók í dag á móti fjölmörgum glöðum krökkum sem sungu hástöfum fyrir starfsfólk, gesti og gangandi í tilefni Öskudagsins. Lagavalið var fjölbreytilegt, frumsamin lög , þekkt lög, gömul og ný ma. hið nýkjörna eurovisionlag "Mundu eftir mér" eftir mosfellinginn Grétu Salóme Stefánsdóttur,
Sælgæti á Öskudag
21.02.2012Skólastjórnendur í Mosfellsbæ vilja koma vinsamlegum tilmælum til fyrirtækja og stofnana í bænum vegna Öskudagsins: Í grunnskólum Mosfellsbæjar er hefð fyrir því að kennsla sé til kl. 13:20 á Öskudag og því eru þau börn sem koma fyrir þann tíma í fyrirtæki
Bæjarskrifstofa Mosfellsbæjar tekur þátt í Góðverkadögum 2012
21.02.2012Bæjarskrifstofa Mosfellsbæjar tekur þátt í Góðverkadögum sem verða haldnir um land allt dagana 20. til 24. febrúar. Verkefnið byggist á gamalli hefð skáta um að láta gott af sér leiða með því að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag. Á Góðverkadögum eru landsmenn allir hvattir til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.
Opnun seinni hluta sýningar HUXI! í Listasal Mosfellsbæjar
17.02.2012Föstudaginn 17.febrúar kl.16-18, verður opnaður síðari hluti sýningarinnar HUXI!.Nemendur úr 10. bekk Lágafells- og Varmárskóla hafa sett upp verk sem þeir hafa unnið undir áhrifum frá verkum Hugleiks og Arnars á sýningunni. Hvetjum alla að kíkja inn og sjá upprennandi listamenn sýna verk sín. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Nemendur úr 9. og 10. bekk í Varmárskóla heimsóttu Riga í Lettlandi
17.02.2012Vikuna 11. – 16. febrúar voru 15 nemendur og þrír kennarar úr Varmárskóla, í Riga í Lettlandi að taka þátt í Nordplus junior verkefni. Nemendurnir heimsóttu jafnaldra sína í Rīgas Zolitūdes Ģimnazija skólanum.
Opin vika í Listaskólanum
15.02.2012Vikuna 13. - 17. febrúar er opin vika í Listaskólanum. Þá halda nemendur í mið- og framhaldsnámi tónleika og flytja fjölbreytta dagskrá í öllum grunnskólum bæjarins og auk þess eina tónleika í Bókasafni Mosfellsbæjar.
Bæjarskrifstofa Mosfellsbæjar lokuð 8-12
13.02.2012Vegna starfsmannafundar verður Bæjarskrifstofa Mosfellsbæjar lokuð til kl. 12 á morgun, þriðjudaginn 14. febrúar
Íslandsmet ef veður leyfir
10.02.2012Kærleiksvikan hefst í dag en hátíðin fer fram í Mosfellsbæ vikuna 12.-19. febrúar. Hátíðin hefst meðal annars á þegar skýjaluktum verður sleppt á Miðbæjartorginu kl. 18. Stefnt er að því að um 150 skýjaluktir stígi til himins ef veður leyfir og eru Mosfellingar hvattir til að taka þátt í gjörningnum.
Kærleiksvikan framundan 12.-19. febrúar
08.02.2012Kærleiksvika verður nú haldin í þriðja sinn 12.-19. febrúar en eins og áður verður kærleikurinn ofar öllu hér í Mosfellsbæ. Markmið vikunnar er að hver einasti bæjarbúi finni fyrir kærleik í sinn garð og gefi af sér kærleik. Þetta gæti falist í hrósi, faðmi, brosi, fallegum skilaboðum eða einhverju öðru uppbyggilegu og skemmtilegu. Skipulögð hefur verið fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna alla vikuna.
Til hamingju
08.02.2012Það er óhætt að óska Mosfellingnum, Grétu Salóme Stefánsdóttur, innilega til hamingju því svo sannarlega kom hún, sá og sigraði í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins 2012 sem fram fór í Hörpu sl. laugardagskvöld.
Dagur leikskólans er í dag
06.02.2012Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu
Lokað verður vegna vegaframkvæmda í Mosfellsbæ
01.02.2012
|
Unnið er við að fjarlægja undirslátt undan brúargólfi göngubrúar yfir Vesturlandsveg við Krikahverfi í Mosfellsbæ í dag og á morgun. Vegna þessa þarf að loka tímabundið fyrir umferð eftir Vesturlandsvegi undir brúna. |
Síða 0 af Infinity