Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2009
Fréttir eftir mánuðum
Auglýsing um kjörstað og aðsetur yfirkjörstjórnar Mosfellsbæjar
29.06.2012Tilkynning frá yfirkjörstjórn Mosfellsbæjar: Kjörstaður vegna forsetakosninganna sem fram fara þann 30. júní 2012 er í Lágafellsskóla við Lækjarhlíð og stendur kjörfundur frá kl. 9:00 - 22:00. Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag þann 30. júní 2012 verður á sama stað.
Opnun í blíðskaparveðri
29.06.2012Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra klippti tvívegis á borða í gær, 28. júní, til að opna formlega göngubrú við Krikahverfi í Mosfellsbæ og samgöngustíg meðfram Vesturlandsvegi. Hann naut aðstoðar Hreins Haraldssonar vegamálastjóra og Haraldar Sverrissonar bæjarstjóra í Mosfellsbæ. Blíðskaparveður setti mark sitt á klippingarnar sem og söngur barnanna úr Krikaskóla.
Formleg opnun í dag
28.06.2012Formleg opnun göngubrúar við Krikahverfi og stofnstígs meðfram Vesturlandsveg verður í dag, fimmtudaginn 28.júní. Athöfnin hefst kl. 15:30 þegar klippt verður á borða vestan brúarinnar. Við athöfnina munu börn úr Krikaskóla syngja. Einnig verður klippt á borða við samgöngustíginn í Hamrahlíðarskógi kl.15:50 þar sem stígurinn endar.
Lokanir vegna malbikunarframkvæmda
26.06.2012Lokanir vegna malbikunarframkvæmda
Vegna malbikunarframkvæmda verður Baugshlíð lokuð frá Vesturlandsvegi að Klapparhlíð fram yfir hádegi í dag, 26. júní.
Á næstu dögum má búast við umferðartöfum vegna framkvæmda við stofnbrautir bæjarins.
Listasalur - Þræta um línur og liti
22.06.2012Guðrún Gunnarsdóttir opnar sýninguna Þræta um línur og liti í Listasal Mosfellsbæjar föstudaginn 22. júní kl. 16.00-18.00. Guðrún lærði vefnað og textílhönnun í Kaupmannahöfn, auk þess að taka þátt í fjölmörgum myndlistartengdum námskeiðum. Guðrún hefur dvalið víða á vinnustofum erlendis og stundað kennslu
Brosandi bær ;o)
19.06.2012Uppákomur á Miðbæjartorgi á fimmtudögum í sumar.
Alla fimmtudaga í sumar fram að Verslunarmannahelgi verða skemmtilegar og fjölbreyttar uppákomur fyrir alla fjölskylduna kl. 16:00
á Miðbæjartorginu.
Brosandi bær ;o)
Íbúar Mosfellsbæjar fá bláa pappírstunnu
18.06.2012Mosfellingar geta nú með auðveldara móti endurunnið pappír og pappaúrgang því þeir fá nú bláa pappírstunnu við hvert hús. Fyrsta tunnan var afhent í byrjun júní en það var hún Greta Salome sem fékk fyrstu bláu tunnuna. Markmiðið er að auka þjónustu við íbúa, auka endurvinnslu og draga úr úrgangi sem fer til urðunar.
Skóflustunga tekin að nýbyggingu Framhaldsskólas í Mosfellsbæ
16.06.2012Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar taka í dag kl. 14:00 fyrstu skóflustunga vegna nýbyggingar Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Skólinn verður staðsettur í miðbæ Mosfellsbæjar. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ var formlega stofnaður 19. febrúar 2008 með undirritun samkomulags milli að í fyrsta áfanga verði gert ráð fyrir allt að 4.000 m2 byggingu er rúmi 4-500 bóknámsnemendur.
ÍÞRÓTTAHÚS AÐ VARMÁ - ALÚTBOÐ
16.06.2012Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í byggingu nýs íþróttahúss að Varmá. Um er að ræða 1200 m² nýbyggingu sem staðsett verður norðaustan við núverandi íþróttamannvirki. Vettvangsskoðun verður fimmtudaginn 7. júní kl. 14 á verkstað. Verkkaupi áætlar að húsið verði fokhelt 1. janúar 2013.
MúsMos tónlistarhátíðin í Álafosskvos
16.06.2012MúsMos tónlistarhátíðin í Álafosskvos verður haldin í fimmta sinn í ár og fer hún nú fram þann 16. júní. Tónleikarnir eru haldnir til þess að gefa ungu og upprennandi tónlistarfólki sem er að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni tækifæri til að stíga á svið.
Hátíðarhöld 17. júní ATH. LAGFÆRÐAR TÍMASETNINGAR Á SKRÚÐGÖNGU OG KVÖLDTÓNLEIKUM.
16.06.2012Dagskrá 17. júní er fjölbreytt að vanda. Hún hefst með guðþjónustu í Lágafellskirkju kl. 11 en hátíðardagskráin hefst kl. 13 á Miðbæjartorgi. Þaðan verður farið í skrúðgöngu kl 13:30 að Hlégarði þar sem boðið er upp á fjölskyldudagskrá fram eftir degi. Um kvöldið verða tónleikar á Hvíta Riddaranumi.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ í Mosfellsbæ 16. Júní
15.06.2012Í ár verður Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ haldið 16. júní um allt land. Nú er um að gera að fara að huga að því að koma sér í form, kynna sér hlaupahópa í sínu hverfi og mæta fersk til leiks í byrjun júní. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ sem haldið er í Mosfellsbæ hefst 11:00. Þrjár vegalengdir í boði, 3, 5, og 7 km.
Mosfellsbær í fullum blóma
14.06.2012Sumarið er komið í Mosfellsbæ og má nú sjá blómlega ljósastaura um allan bæ. Undanfarna daga hafa ötulir starfsmenn hjá garðyrkjudeild Mosfellsbæjar unnið hörðum höndum að því að gróðursetja sumarblóm í öllum regnbogans litum. Blómunum er komið fyrir í blómakerjum, í beðum á torgum og lystigörðum auk þess sem sett eru upp blómaker við helstu götur bæjarins og allt kapp lagt á fegra bæjinn fyrir þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Sumarið verður að vanda litríkt í Mosfellbæ.
13.06.2012 Hið vinsæla sumartorg verður starfrækt í fjórða sinn og verður nú haldið á fimmtudagseftirmiðdögum. Alla fimmtudaga kl. 16.00 í sumar fram að verslunarmannahelgi verður Mosfellingum - ungum sem öldnum boðið að koma og upplifa sannkallaða sumarstemningu á torginu okkar.
Útboð - Hlégarður, þakviðgerðir
11.06.2012Mosfellsbær óskar eftir tilboðum - þakviðgerðir á Hlégarði. Um er að ræða: Háþrýstiþvott og málun, endurnýjun þakjárns og endurnýjun á þakkanti. Vettvangsskoðun verður 14. júní kl. 13:00 á verkstað. Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2 á 2. hæð frá og með mánudeginum 11. júní eftir kl: 13.00
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir ábendingu um bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2012.
11.06.2012Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir ábendingu um bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2012. Bæjarlistamanni er jafnframt veittur menningarstyrkur og kynnir sig og verk sín innan Mosfellsbæjar á því ári sem hann er tilnefndur. Útnefning er að vanda tilkynnt í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima.
Kvennahlaupið að Hlaðhömrum
06.06.2012Kvennahlaup/ganga verður frá Hlaðhömrum þriðjudaginn 12. júní kl. 14. Nokkrar vegalengdir í boði. Bolir verða seldir á staðnum. Þátttökugjald er 1.250 kr. Innifalið í því er bolur og verðlaunapeningur. Hvetjum fjölskyldur og vini til að mæta með sínum konum.
Stofnstígur meðfram Vesturlandsvegi – Áfangi 2
06.06.2012Eins og kunnugt er standa nú yfir framkvæmdir á göngu- og hjólreiðastíg meðfram Vesturlandsvegi. Þessi samgöngustígur á að tengja saman stígakerfi Mosfellsbæjar við stígakerfi Reykjavíkur. Þessi stígur mun auðvelda hjólreiðamönnum sem og öðrum að komast leiðar sinnar á sem öruggastan hátt.
Opið hús á Héraðsskjalasafni Mosfellsbæjar
04.06.2012Laugardaginn 9. júní er alþjóðlegi skjaladagurinn sem skjalasöfn um allan heim taka þátt í með einum eða öðrum hætti. Á þessum degi er vakin athygli á mikilvægi starfs skjalasafna og mikilvægi þess að skjöl varðveitist með tryggilegum hætti.
Bilun í símkerfi Krikaskóla
04.06.2012Bilun er í símkerfi Krikaskóla. Símtöl eru áframsend í gsm-númer á meðan á viðgerð stendur. Vinsamlegast sýnið biðlund eða hafið samband við okkur með tölvupósti.
Bláa tunnan á leið til þín
04.06.2012Framundan er innleiðing á blárri endurvinnslutunnu við hvert heimili í Mosfellsbæ og víðar á höfuðborgarsvæðinu. Kynningarbæklingur hefur borist í öll hús og munu sérfræðingar Íslenska Gámafélagsins ganga í hús nú í júní og fræða íbúa nánar um nýju blátunnuna sem verður afhent í júní mánuði.
Sjö tinda ganga og Sjö tinda hlaupið
01.06.2012Skemmtilegt utanvegahlaup, 7 tinda hlaupið í Mosfellsbæ, verður hlaupið í fjórða sinn hinn 9.júní næstkomandi. Hlaupið er utanvega um fjöll, heiðar og dali í bæjarlandi Mosfellsbæjar. Í boði eru fjórar hlaupaleiðir, 37 km á sjö tinda, 34 km á fimm tinda,19 km á 3 tinda og 12 km á 1 tind. Hlaupið er hluti af Landsmóti UMFÍ 50+.
Nýtt tímabil Frístundaávísana fyrir veturinn 2012-2013
01.06.2012Frístundaávísanir fyrir veturinn 2012-2013 verða virkar frá 1. september 2012. Mosfellsbær gefur forráðamönnum allra barna og unglinga á aldrinum 6-18 ára, árgangar 1995-2006, með lögheimili í Mosfellsbæ kost á frístundaávísun að upphæð 15.000,- kr
Opið fyrir umsóknir í Listasal Mosfellsbæjar
01.06.2012Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um sýningarhald í Listasal Mosfellsbæjar á tímabilinu nóvember 2012 til desember 2013. Óskað er eftir umsóknum um einka og samsýningar. Listasalur Mosfellsbæjar er fjölnota salur í Bókasafni Mosfellsbæjar og er lánaður endurgjaldslaust til sýnenda.
Síða 0 af Infinity