Fréttasafn
2021
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2014
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2013
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2012
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2011
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2010
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2009
Fréttir eftir mánuðum
Opnun listsýningar í Listasal Mosfellsbæjar 2. nóvember
28.09.2013Styrktartónleikar Kirkjukórs Lágafellssóknar í Grafarvogskirkju.
27.09.2013Jafnréttisviðurkenning afhent FMOS á Jafnréttisdegi Mosfellsbæjar
24.09.2013Aukin framlög bæjarins til íþrótta og tómstunda. Tæp 60% hækkun frá 2012.
23.09.2013Ásgarður færir börnum í Mosfellsbæ leiktæki í Ævintýragarðinn
23.09.2013Hafist handa við Tunguveg
23.09.2013Nýr vegur frá Skeiðholti að Kvíslartungu sem er mikil samgöngubót fyrir íbúa Leirvogstungu. Mosfellsbær hefur nú lokið við útboð á hönnun og framkvæmd Tunguvegar. Hnit verkfræðistofa, Kanon arkitektar og landslagsarkitektinn Birkir Einarsson munu sjá um hönnun. Verktaki er Ístak ehf. og hafa þeir nú þegar sett upp vinnuaðstöðu neðan Kvíslartungu. Verkið felst í því að leggja nýjan Tunguveg frá Skeiðholti að Kvíslartungu alls um 1 km. Samhliða veginum verður hjóla- og göngustígur. Byggðar verða brýr yfir Varmá og Köldukvísl. Undir brúnum er gert ráð fyrir reiðstíg. Framkvæmdin felst einnig í að byggja undirgöng fyrir gangandi og hjólandi umferð undir Skeiðholt.
Styrktartónleikar Kirkjukórs Lágafellssóknar í Grafarvogskirkju.
23.09.2013Árlegir styrktartónleikar Kirkjukórs Lágafellssóknar verða haldnir í Grafarvogskirkju laugardaginn 28. september kl.16. Tónleikarnir eru að þessu sinni til styrktar Hagbarði og börnum en Guðrún G. Sigurðardóttir, eiginkona Hagbarðar og móðir barnanna, andaðist á sviplegan hátt í júní síðastliðnum. Hún er uppalinn í Mosfellsbæ og því ákvað kórinn að fjölskylda hennar nyti góðs af tónleikunum í ár. Allur ágóði tónleikanna rennur til Hagbarðar Valssonar og barnanna hans fjögurra í Noregi.
Ráðstefna í Iðnó um rétt barna til hjólreiða.
19.09.2013Föstudaginn 20. september, fer fram spennandi ráðstefna í Iðnó um rétt barna til hjólreiða. Ráðstefnan, sem ber yfirskriftina Hjólað til framtíðar, er hluti af dagskrá samgönguviku á höfuðborgarsvæðinu sem Mosfellsbær er virkur þátttakandi í. Virtir innlendir og erlendir fyrirlesarar mun flytja þar erindi um hjólreiðar barna. Aðgangur er ókeypis og hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á heimasíðu Landsamtaka hjólreiðamanna, www.lhm.is .
Mosfellsbær stuðlar að auknum almenningssamgöngum.
19.09.2013Mosfellsbær vígði í dag nýtt reiðhjólaskýli við strætisvagnabiðstöðina við Háholt. Markmiðið er að stuðla að bættum samgöngum í Mosfellsbæ og gera hjólreiðar og almenningssamgöngur að betri valkosti. Uppsetning hjólreiðaskýlisins mun auka möguleika almennings að nýta sér hjólreiðar innanbæjar, en geyma síðan reiðhjólið í skýlinu, í skjóli fyrir veðri og vindum, á meðan almenningssamgöngur eru nýttar til ferða til og frá Mosfellsbæ. Uppsetning hjólreiðaskýlisins er hluti af samgönguviku í Mosfellsbæ og með framkvæmdinni vill Mosfellsbær skipa sér sess sem sveitarfélag þar sem hjólreiðar og almenningssamgöngur eru raunhæfur kostur.
Hjólastígar í Mosfellsbæ
19.09.2013Í tilefni af Samgönguviku í Mosfellsbæ eru íbúar hvattir til að nýta sér fjölbreytt úrval hjólastíga í bænum til útivistar og notfæra sér um leið nýtt hjóla- og göngustígakort sem gefið var út í upphafi samgönguvikunnar og finna má á heimasíðu bæjarins og á helstu stöðum í bænum. Jafnframt er vakin athygli á korterskortið á heimasíðunni.
Fjölskyldunefnd auglýsir eftir umsóknum
19.09.2013Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði fjölskylduþjónustu í Mosfellsbæ. Umsóknir skulu berast Þjónustuveri Mosfellsbæjar Þverholti 2, 2. hæð á þar til gerðum eyðublöðum í síðasta lagi 30. nóvember nk. Eyðublöðin má nálgast í Þjónustuverinu og á heimasíðu bæjarfélagsins
BMX kappar sýna listir sínar við íþróttamiðstöðina að Varmá
18.09.2013Í dag kl. 15:00 munu BMX kappar sýna listir sínar á hjólabrettapallinum við íþróttamiðstöðina að Varmá. Viðburðurinn er hluti af dagskrá samgönguviku í Mosfellsbæ.
Dr. Bæk mun mæta á staðinn og aðstoða við hjólastillingar og smáviðgerðir reiðhjóla.
Allir hvattir til að mæta og sjá meistaratakta í hjólalistum og prófa hjólaþrautir.
Samgönguvika í Mosfellsbæ
16.09.2013Dagana 16. - 22. september fer fram Evrópsk samgönguvika í Mosfellsbæ og mun Mosfellsbær ásamt öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu taka virkan þátt og bjóða uppá ýmsa viðburði í tilefni samgönguvikunnar. Meðal viðuburða má nefna heilsuátakið „Hjólum í skólann“ fer fram í framhaldsskólum landsins þessa vikuna og hjólaráðstefnan „Hjólum til framtíðar“ sem haldin verður föstudaginn 20. september í Iðnó, en þar munu erlendir gestafyrirlesarar halda erindi um rétt barna til hjólreiða.
Fræðsluganga á Degi íslenskrar náttúru
15.09.2013Mosfellsbær stendur fyrir fræðslugöngu á Degi íslenskrar náttúru næsta mánudag, 16. september, um Ævintýragarðinn í Ullarnesbrekkum að Tungufossi. Farið frá íþróttamiðstöðinni að Varmá kl. 17, allir velkomnir.
Þér er boðið á jafnréttisdag Mosfellsbæjar árið 2013.
13.09.2013Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar 2013 verður haldinn hátíðlegur í eldri deild Varmárskóla, Mosfellsbæ, fimmtudaginn 19. september kl. 13 – 14. Yfirskrift dagsins er: Unglingar og fræðsla um jafnrétti. Nemendur á unglingastigi í grunnskólum Mosfellsbæjar eru sérstakir heiðursgestir ásamt kennurum sínum. Starfsfólk Mosfellsbæjar og íbúar í Mosfellsbæ eru einnig hjartanlega velkomnir
Ábendingarkerfi um þjónustu og viðhald
12.09.2013Framkvæmda- og umhverfissvið Mosfellsbæjar hefur umsjón með fjölmörgum verkefnum sem lúta að viðhaldi og hreinsun bæjarinns. Mikilvægur hluti af virkni bæjarlífsins er að ábendingar íbúa komist skýrt og skilmerkilega rétta leið og að vel sé haldið utan um þær. Við þiggjum með þökkum upplýsingar um það sem þarf að laga í bæjarfélaginu. Bentu okkur á hvar eru holur í malbiki, glerbrot sem skapast hætta af, laus brunnlok, sködduð umferðarmerki, lausar hellur, yfirfullir ruslastampar, skemmdir bekkir, óþrifnaður, óvirk götulýsing eða annað sem tengist þjónustu í borgarlandinu.
Vetrarfrístund í boði í vetur
11.09.2013Tómstundastarf er jákvæð viðbót við líf barna. Allir vita hve mikilvægt er að hreyfa sig. Hollt mataræði og regluleg hreyfing skiptir miklu máli fyrir vöxt og þroska. Í vetur verður nóg framboð af spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga í Mosfellsbæ. Minnum við einnig á að nýta frístundaávísun en Mosfellsbær styrkir frístundaiðkun allra barna og unglinga á aldrinum 6-18 ára með lögheimili í Mosfellsbæ með framlagi að upphæð 18.000,- kr. Markmið þessarar niðurgreiðslu er að hvetja börn og unglinga til að finna sér frístund sem hentar hverjum og einum.
Kynningarfundur vegna vegaframkvæmda - Tunguvegur, Skeiðholt - Kvíslartunga
11.09.2013Vegna vegaframkvæmda sem eru að hefjast við Tunguveg í Mosfellsbæ verður haldinn kynningarfundur hjá Hestamannafélaginu Herði í félagsheimilinu Harðarbóli á morgun, fimmtudaginn 12.09 kl.18:00 en þar munu starfsmenn Mosfellsbæjar kynna framkvæmdir við Tunguveg fyrir fundargestum og sitja fyrir svörum. Allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin Ból
09.09.2013Bókasafnsdagurinn 2013 var haldinn hátíðlegur 9. september.
09.09.2013Tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna fyrir þjóðfélagið. Bókasöfn gegna mikilvægu hlutverki sem miðstöð fræðslu og þekkingar, fyrir framboð á tónlistar- og myndlistarefni, yndislestri og afþreyingu, fyrir aðstoð við upplýsingaöflun og gagnaleit.
Kökubasar í Bónus
06.09.2013Félagsmiðstöðin Ból er að selja kökur í dag fyrir utan Bónus í Kjarnanum. Kökubasarinn er söfnun fyrir duglega unglinga sem að tóku þátt í því á síðustu önn að setja upp söngleik í Bólinu. Gekk söngleikurinn svo vel að okkur langaði til að gera eitthvað með þeim og erum við nú að safna fyrir ferð sem farin verður á morgun, laugardag. Endilega rennið við í Kjarnanum og nælið ykkur í kökur á mjög góðu verði.
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2013
03.09.2013Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2013 voru afhendar við hátíðlega athöfn á bæjarhátíð Mosfellsbæjar „Í túninu heima“ nú um helgina.
Heitavatnslaust í Leirvogstunguhverfi
03.09.2013Vegna tengingar á stofnæð hjá Orkuveitu Reykjavíkur verður heitavatnslaust í Leirvogstunguhverfi fimmtudaginn 12.september, frá kl. 9 og frameftir degi.
Laus störf við Lágafellsskóla
02.09.2013Góð þátttaka Í túninu heima
02.09.2013Nú er vel heppnuð bæjarhátíð að baki og haustið á næsta leyti. Veðrið setti strik í reikninginn að þessu sinni. Fella þurfti niður 7 tinda hlaupið og minna var um skreytingar í bænum en verið hefur. Mjög góð þátttaka var þrátt fyrir allt í öllum helstu viðburðum helgarinnar. Fjöldi gesta lagði leið sína í Álafosskvos þar sem hægt var að skoða og kaupa ýmsan
Ólafur Gunnarsson rithöfundur kosinn bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2013.
02.09.2013Ólafur Gunnarsson einn helsti rithöfundur Íslands var heiðraður sem bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2013 við hátíðlega athöfn í Hlégarði. Hann dregur upp lifandi og litsterka mynd af sögutíma og persónum og er ósmeykur við að velta upp þeim stóru siðferðilegu spurningum sem spurt er í alvöru skáldskap. Hann hefur nýtt sögu Íslands á mjög áhugaverðan hátt í skáldskap. Ólafur er afkastamikill rithöfundur og skáldsögur hans hafa fengið góðar viðtökur og viðurkenningar.
Bæjarhátíð lýkur með glæsilegri dagskrá á sunnudegi
01.09.2013
Það má segja að bæjarhátíð okkar Mosfellinga hafi byrjað með hvelli þegar veðurguðir sýndu sínar erfiðustu hliðar en sumir létu það ekki á sig fá og var frábær stemning í kvosinni á föstudagskvöldði er bæjarhátíð Mosfellsbæjar hófst . Glaðasti hundurinn og dúettinn Hljómur skemmtu þeim allra hörðustu sem létu veðrið ekki stoppa sig. Hátíndur hátíðar var þó án vafa á laugardeginum með pakkaðri dagskrá af spennandi viðburðum fyrir stóra og smáa, opnum húsum listamanna, iðandi mannlífi á mörkuðum bæði í Álafosskvos og í Mosfellsdal þar sem mátti líta varning af ýmsu tagi. Tívolí, barnadagskrá með Lalla töframanni og þeim félögum Sveppa og félaga skemmtu börnunum á miðbæjartorgi. Húsdýragarður og Dýrahjálp glöddu börnin með ferfætlingum. Flug yfir Mosfellsbæ og karmellukast. Flugeldasýning og stórtónleikar með Palla slúttuðu laugardagskvöldi með glæsibrag.
Síða 0 af Infinity