- Stjórnkerfi
- Starfsemi
- Mannauður
- Fjármál
- Ársreikningar
- Fjárhagsáætlun
- Rekstraryfirlit
- Álagning gjalda
- Gjaldskrár
- Opið bókhald
- Rafrænir reikningar
- Styrkir Mosfellsbæjar
- - Bæjarlistamaður
- - Efnilegt ungt fólk
- - Greiðsla fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka
- - Klörusjóður
- - Listir og menning
- - Styrkir til náms, verkfæra og tækjakaupa
- - Styrkir til verkefna á sviði fjölskylduþjónustu
- - Umhverfisviðurkenning
- - Þróunar- og nýsköpunarviðurkenning
Klörusjóður
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ
Fræðslu- og frístundasvið Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum í nýsköpunar- og þróunarsjóð skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.
Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í leik- og grunnskólum Mosfellsbæjar.
Veittir eru styrkir einu sinni á ári úr sjóðnum.
Í nýsköpunar- og þróunarsjóðinn geta sótt einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við skóla/frístund í Mosfellsbæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu sem og fræðslu- og frístundasvið í samstarfi við skóla.
Áherslan 2020 er á upplýsinga- og tæknimál.

Sækja um styrk
Umsóknarfrestur rann út 28. maí 2020.
- Leiðbeiningar með umsókn (pdf).
- Reglur um Klörusjóð (pdf).
Nafn sjóðsins er Klörusjóður, til heiðurs Klöru Klængsdóttur (1920-2011). Klara útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1939 og hóf sama ár kennslu við Brúarlandsskóla. Hún starfaði alla sína starfsævi sem kennari í Mosfellsbæ.