Ungbarnaþjónusta
Mosfellsbær býður upp á þrjár leiðir í ungbarnaþjónustu:
- Pláss í ungbarnaleikskóla/deild í Mosfellsbæ (Hlíð og Hulduberg).
- Pláss hjá sjálfstætt starfandi ungbarnaleikskólum með þjónustusamning við Mosfellsbæ (Fossakot og Korpukot).
- Pláss hjá sjálfstætt starfandi dagforeldrum með þjónustusamning við Mosfellsbæ.
Foreldrar geta vistað börn sín hjá þessum aðilum og allir greiða sama gjald óháð vistunarformi. Gjaldskráin er tvískipt, annars vegar fyrir börn undir 13 mánaða og hins vegar frá 13 mánaða aldri.

Þegar barn er komið í eitt af þessum þremur ungbarnaúrræðum er að öllu jöfnu gert ráð fyrir að barnið sé þar, þar til pláss á almennri deild í leikskóla býðst. Frá 18 mánaða aldri teljast börnin vera komin á leikskólaaldur og er leikskólaplássum úthlutað eftir úthlutunarreglum leikskóla Mosfellsbæjar.
Umsóknir um pláss í ungbarnaþjónustu
1. Dagforeldrar
Foreldrar sækja sjálfir um pláss hjá dagforeldrum og eiga í samskiptum við dagforeldra um upphaf vistunar. Foreldrar gera vistunarsamning við dagforeldra, dagforeldrar upplýsa Mosfellsbæ og sjá um innheimtu niðurgreiðslu fyrir hvert barn. Foreldrar geta vistað börn sín hjá dagforeldrum í öðrum sveitarfélögum svo fremi að viðkomandi dagforeldri hafi starfsleyfi frá sínu sveitarfélagi.
2. Ungbarnaleikskólar hjá sjálfstætt starfandi rekstraraðilum
Foreldrar sækja sjálfir um pláss og eiga í samskiptum um upphaf vistunar. Foreldrar gera vistunarsamning við leikskólann, leikskólinn upplýsir Mosfellsbæ og sér um innheimtu niðurgreiðslu.
3. Ungbarnaleikskóli/deild hjá Mosfellsbæ
Foreldrar sækja um í Íbúagátt um leið og sótt er um leikskólapláss.