Lóðir við Fossatungu og Kvíslartungu
Úthlutun er lokið
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt úthlutunarskilmála og verð við úthlutun á 31 lóð við Fossatungu og Kvíslartungu í Mosfellsbæ.
Um er að ræða stækkun Leirvogstunguhverfis til austurs í átt að Köldukvísl. Leirvogstunguhverfið er glæsilegt sérbýlishúsahverfi í Mosfellsbæ sem afmarkast af Leirvoginum og Vesturlandsvegi.
Hér fyrir neðan er listi yfir seldar lóðir. Verð lóða samanstóð af gatnagerðargjaldi sem er 32.082 kr. á m² auk byggingaréttargjalds sem er misjafnt eftir húsagerð. Byggingaréttargjald er u.þ.b.:
- 18.000 kr. á m² vegna einbýlishúsa.
- 14.000 kr. á m² vegna parhúsa.
- 10.000 kr. á m² vegna raðhúsa/keðjuhúsa.
Fermetraverð reiknast á hámark leyfilegrar stærðar húss.
Umsóknarfrestur: 5. apríl 2018.
Lóðir sem koma til úthlutunar og byggingarmagn
Um er að ræða eftirfarandi 31 lóðir við Fossatungu og Kvíslartungu í Mosfellsbæ:
Tegund |
Fjöldi íbúða |
||||
Raðhús | Fossatunga 1-7 | 4 íbúðir | 604 m2 | 1.508 m2 | 25.000.000 |
Raðhús | Fossatunga 9-15 | 4 íbúðir | 602 m2 | 1.503 m2 | 25.000.000 |
Raðhús | Fossatunga 2-6 | 3 íbúðir | 512 m2 | 1.282 m2 | 21.000.000 |
Raðhús | Fossatunga 8-12 | 3 íbúðir | 511 m2 | 1.278 m2 | 21.000.000 |
Raðhús | Fossatunga 14-18 | 3 íbúðir | 515 m2 | 1.288 m2 | 21.000.000 |
Parhús | Fossatunga 17-19 | 2 íbúðir | 330 m2 | 827 m2 | 15.000.000 |
Parhús | Fossatunga 21-23 | 2 íbúðir | 330 m2 | 827m2 | 15.000.000 |
Parhús | Fossatunga 25-27 | 2 íbúðir | 330 m2 | 827 m2 | 15.000.000 |
Parhús | Fossatunga 29-31 | 2 íbúðir | 331 m2 | 828 m2 | 15.000.000 |
Parhús | Fossatunga 20-22 | 2 íbúðir | 384 m2 | 984 m2 | 17.500.000 |
Parhús | Fossatunga 24-26 | 2 íbúðir | 395 m2 | 986 m2 | 17.500.000 |
Einbýli | Kvíslartunga 120 | 1 íbúð | 278 m2 | 555 m2 | 13.500.000 |
Einbýli | Kvíslartunga 134 | 1 íbúð | 256 m2 | 511 m2 | 13.000.000 |