Aðalskipulag Mosfellsbæjar 2011-2030 var staðfest af Skipulagsstofnun þann 19. september 2013 og tók gildi með birtingu auglýsingar í Stjórnartíðindum 3. október sama ár. Lauk þar með endurskoðun aðalskipulagsins sem unnið hafði verið að allt frá árinu 2008.
Samkvæmt grunnspá skipulagsins munu íbúar bæjarins, sem voru tæp 9.000 í lok árs 2012, verða tæp 14.000 árið 2024 og tæp 17.000 árið 2030.
Staðfest skipulagsgögn aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030 eru annarsvegar tveir uppdrættir, þéttbýlisuppdráttur og sveitarfélagsuppdráttur, og hinsvegar greinargerð sem inniheldur stefnu og skipulagsákvæði aðalskipulagsins og umhverfisskýrslu.
Staðfest skipulagsgögn
Endurskoðun aðalskipulags
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 3. október 2018 að endurskoða gildandi aðalskipulag Mosfellsbæjar 2011-2030. Tillagan var upphaflega afgreidd af skipulagsnefnd Mosfellsbæjar þann 21. september 2018. Ákvörðun um endurskoðun er í samræmi við 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ákvæði 4.8.1. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Endurskoðun aðalskipulags Mosfellsbæjar verður unnið skv. skipulagslögum nr. 123/2010. Þar er aðalskipulag skilgreint þannig: „Skipulagsáætlun fyrir tiltekið sveitarfélag þar sem fram kemur stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu.“
Mosfellsbær hefur samið við ARKÍS arkitekta um skipulagsráðgjöf við endurskoðun aðalskipulagsins. ARKÍS arkitektar munu vinna endurskoðunina í samvinnu við skipulagsfulltrúa, starfsfólk umhverfissviðs og Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar. Gert er ráð fyrir að nýtt skipulag verði samþykkt vorið 2022.
Ábendingar og erindi skulu berast á skipulag[hja]mos.is eða skriflega á bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær.
Frumdrög nýs aðalskipulags Mosfellsbæjar eru aðgengileg til umsagnar í samráðsgátt Skipulagsstofnunar. Umsagnarfrestur er til og með 12. september 2023.