Leik- og grunnskólabörn í Mosfellsbæ eru tryggð hjá Sjóvá.
Um slysatryggingu skólabarna:
Öll börn, sem eru búsett í Mosfellsbæ og eru skráð í grunnskóla (gildir um slys sem verða á skólatíma og í frístundaseljum, á skólalóð eða í ferð á vegum skólans), leikskóla, á sumarnámskeiðum ÍTOM og í skipulögðu tómstundastarfi félagsmiðstöðva eru sjálfkrafa vátryggð hjá Sjóvá.
Sjálfsábyrgð í hverju tjóni er kr. 17.000 vegna slyss á barni (nemanda).
Ferli varðandi slysatryggingu á skólatíma:
- Foreldrar greiða sjálfir heimsóknir á heilsugæslu eða til sérfræðinga vegna slyssins (ekki skólinn eða Mosfellsbær).
- Þegar upphæðin sem foreldrar hafa þurft að greiða vegna slyssins fer yfir kr. 17.000 fara foreldrar með nóturnar á skrifstofu Sjóvá og fá endurgreitt.
Best er að leita til Sjóvár fyrir frekari upplýsingar.