Þriðjudaginn 27. júní frá kl. 09:00 til 13:00 verður unnið við fræsingar á Þverholti frá Álfatanga að Skeiðholti (báðar akreinar). Hjáleið er um Álfatanga og Skeiðholt og einnig um Brattholt. Sama dag frá kl. 13:00 til kl. 16:00 verður unnið við fræsingar á Áslandi.
Miðvikudaginn 28. júní frá kl. 09:00 til kl. 12:00 verður unnið við fræsingar á Reykjavegi við Krikatorg til austurs. Sama dag frá kl. 12:00 til kl. 14:00 verður unnið við fræsingar á Jónsteig og frá kl. 14:00 til kl. 17:00 verður Dælustöðvarvegur fræstur.
Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir geta valdið. Vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdaraðilum tillitssemi.
Tengt efni
Samningur um innréttingar íþróttahúss Helgafellsskóla undirritaður
Samningur um innri frágang og innréttingar við íþróttahús sem tilheyrir Helgafellsskóla hefur verið undirritaður við fyrirtækið Land og verk ehf.
Lokun á hluta Þverholts 24. apríl 2024
Lokun á Vefarastræti vegna framkvæmda 23. apríl 2024