Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann.
Öll ungmenni á aldrinum 16-20 ára, (f. 2004, 2005, 2006 og 2007) með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og/eða hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn.
Markmið styrksins er meðal annars að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann. Styrkurinn er fólginn í launum frá Mosfellsbæ og greitt í samræmi við önnur sumarstörf hjá Mosfellsbæ.
Sótt er um rafrænt á þjónustugátt Mosfellsbæjar.
Skilafrestur umsókna er til og með 1. mars 2024.
Sækja um á þjónustugátt:
Athygli er vakin á að unglingum á aldrinum 13-15 ára (f. 2008, 2009 og 2010) sem taka þátt í til dæmis landsliðsverkefnum og/eða verkefnum fyrir félög/félagasamtök á vinnutíma vinnuskóla verður gefinn sá möguleiki að sækja formlega um leyfi á launum á þeim tíma sem að verkefnið varir. Skilyrði er að viðkomandi verði skráður í vinnu í Vinnuskóla Mosfellsbæjar og skili þar lágmarks vinnuframlagi.
Tengt efni
Umsóknir óskast í Klörusjóð fyrir árið 2024
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.
Styrkir vegna listviðburða og menningarmála árið 2024 - Umsóknarfrestur til 1. mars
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar.
Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagsamtaka 2024
Mosfellsbær auglýsir eftir umsóknum um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.